Ástusjóður hefur haustið 2026 styrkt Slysavarnafélagið Landsbjörg um kaup á 50 AIS neyðarsendum fyrir áhafnir opinna björgunarbáta björgunarsveita félagsins. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur lagt sérstaka áherslu á að styðja við öryggi sjóbjörgunarfólks félagsins og er innleiðingu á AIS neyðarsendum fyrir allar áhafnir stærri björgunarskipa lokið. Fyrsta skrefið í innleiðingu neyðarsenda fyrir áhafnir opinna björgunarbáta er nú tekið með styrk Ástusjóðs. Heildarverðmæti neyðarsendanna er 3,4 mkr.
Ástusjóður hefur styrkt Slysavarnafélagið Landsbjörg reglulega frá stofnun sjóðsins 2014.

(September 2026)













